22.okt.-5.nóv 2007

Áskil mér rétt til breytinga ef þurfa þykir en þær verða ekki stórvægilegar
Vegna nýtilkominna breytinga á áætlun Gulf Air verðum við að gista í London á heimleið. Það mun hækka verð um nokkur þúsund en vonandi ekki stórvægilega
1.dagur. 22.okt
Flogið með Flugleiðum til London. Þar tökum við vél Gulf Air og höldum áfram til Múskat, höfuðborgar Ómans. Fulltrúi ferðaskrifstofunnar United Tours tekur á móti okkur og gengið frá áritunum. Síðan farið á Al Falaj Hotel sem er fallegt 3ja stjörnu hótel.
2. dagur 23.okt
Menn leggja sig við komuna og fá sér hádegisverð á hótelinu.
Við slöppum af eftir ferðina og tökum lífinu með ró. Síðdegis stutt skoðunarferð á markaðinn og gönguferð meðfram sjónum. Um kvöldið borðum við á Woodlandsveitingahúsið og fáum okkur kvöldverð sem er innifalinn.
Gistum á Al Falaj
3.dagur 24.okt.Morgunverður
Hálfs dags skoðunarferð um Múskat, m.a á Þjóðminjasafn, keyrum framhjá höll Kabúss soldáns og skoðum m.a. Miklumosku sem er stærsta moska í heiminum og einstaklega fögur smíð. Hádegisverður á Golden Oryx veitingahúsinu áður en haldið er til hótels. Hádegisverður er innifalinn.
Síðdegis geta menn slappað af eða farið inn í borg á eigin vegum.
Kvöldverður er EKKI innifalinn. Gistum á Al Falaj
4.dagur. 25.okt.
Morgunverður.
Snemma haldið til Seebflugvallar og nú fljúgum við til Khasab sem er helsti og eini bærinn í héraðinu Musandam. Musandam er strangt tiltekið utan Ómans þó svo svæðið tilheyri því og er á tánni á Hormutssundi við mynni Flóans. Landslag þykir sérstætt og minna á norsku firðina.
Við tjekkum inn á Golden Tulip og síðan er dagssigling og skoðum þá allt sem skoðað verður. Hádegisverður um borð. Innifalinn.Síðari hluta dags rennum við að landi í Khasab og borðum og gistum á Golden Tulip. Kvöldverðurinn er innifalinn

5. dagur 26.okt.
Morgunverður
Ferðum fjöll Musandamm og skoðaðar forsögulegar minjar. Frjáls tími og síðan flogið aftur til Múskat. Gist á Al Falaj. Kvöldverður á Mumtaz Mahal restaurant er innifalinn.
6.dagur 27.okt.
Morgunverður
Hálfs dags skoðunar og verslunarferð í Múskat. Síðari hluta dags förum við í sólarlagssiglingu út á Ómanflóa með dæmigerðum ómönskum dhow, öndum að okkur fegurð og sjávarlofti og fögru útsýni. Kaffi, te og döðlur í boði. Innifalið.
Gistum á Al Falaj
7.dagur 28.okt.Morgunverður
Síðan til flugvallar og förum nú til stærstu borgarinnar í suðri, Salalah við Indlandshaf Út á Seebflugvöll og fljúgum til Salalah, aðalborgarinnar í suðurhlutanum(klst flug). Tjekkum inn á Salalah Hilton sem er 5 stjörnu hótel.
Síðdegis skoðunarferð um Salalah, skoðum víðfeðmar banana og kókóshnetuekrurnar, meðfram ægissíðunni. Farið á Dhofarsafnið þar sem eru margir merkilegir gripir úr suðrinu til sýnis. Ekki má svo gleyma gull og mirrumarkaði. Borðum á Salalah Hilton hlaðborðskvöldverð. Kvöldverðurinn er innifalinn.
8.dagur 29.oktMorgunverður
Síðan er skoðunarferð til vesturs, farið að grafhýsi Jobs, til Moughsail þar sem djúpir hellar við ströndina mynda furðulegan súg og getur sjórinn þeyst marga metra upp úr þessum hellum. Hvarvetna eru hin frægu mirrutré en á þessar slóðir mun drottningin af Saba hafa komið að kaupa mirru áður en hún vitjaði Salómons konungs í Jerúsalem. Skoðum leirhúsin í Haffa sem enn er búið í.
Kvöldverður á Salalah Hilton í boði johannatravel.
9.dagur 30.okt.
Morgunverður.
Síðan letilíf við sundlaug eða ganga með sjónum. Síðdegis er flogið aftur til Múskat. Kvöldverður er borinn fram í flugvélinni á leiðinni. Gistum á Al Falaj
31.okt. 10.dagurMorgunverður
Við leggjum svo af stað og um stórbrotið landslag, skoðum falleg lítil þorp og fjallasali og áfangastaður okkar þennan dag er Nizwa. Borgin var höfuðstaður landsins á 6. og 7.öld og er líklega elsta borgin og hefur alltaf verið mikilvægur tengiliður milli landshlutanna.
Við keyrum upp á Sólarfjall, hið hæsta í landinu og komum við í fallegum litlum þorpum.
Gistum á Golden Tulip, fallegu hóteli skammt frá Nizwa.
1.nóv. 11.dagur
Morgunverður
Að svo búnu stefnum við inn á Wahibasanda sem er eyðimörk og á stærð við Wales, 200 km að lengd og 100 km á breidd. Sandöldur geta orðið allt að 150 metra háar og litbrigðin ólýsanleg. Bedúínar búa hér og hvar um mörkina. Hádegisverður og þjóðdansasýning á leiðinni( innifalinn)..Við keyrum um sandana. Um kvöldið komum við í tjaldbúðirnar. Þar verður slegið upp grilli (kvöldverður innifalinn) Gistum síðan í búðunum Al Raha.
2.nóv. 12 dagur
Morgunverður við tjaldbúðirnar
Góður tími gefinn til að ganga um sandinn.
Við leggjum svo af stað og förum í fjallasali og skoðum lindir og ljúfa staði. Við komuna til Múskat gistum við á Al Falaj
3.nóv. 13. dagurMorgunverður
Frjáls dagur í Múskat. Kveðjukvöldverður í boði ferðaskrifstofunnar
4.nóv. Morgunverður og frjáls tími til hádegis. Þá er tjekkað út og haldið til Seeb flugvallar og um kl. 16 til London með Gulf Air.
Gist í London og heim með fyrstu vél 5.nóv.
Verð er 340 þúsund krónur
Innifalið í ferðinni:
Flug og allir skattar
Vegabréfsáritun
Morgunverður alla dagana
Málsverðir eins og fram kemur í áætlun, þ.e. 5 hádegisverðir
og sex kvöldverðir
Skoðunarferðir og keyrsla sem upp eru taldar í áætlun
Flugmiðar til og frá Salalah
Flugmiðar til og frá Musandam
Sigling í Musandam
Bátsferð á Ómanflóa með þeim veitingum sem nefndar eru
Þjóðdansasýning
Vatn þegar við erum á keyrslu
Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Tips til ómanskra leiðsögumanna og bílstjóra kr. 130 dollarar á mann. Menn geta valið um að borga það í íslensku með síðustu greiðslu eða einhvern fyrstu dagana úti
Aðrir hádegisverðir en þeir sem upp eru taldir
Kvöldverður sem ekki er minnst á í áætlun ( má búast við að verð sé 15-20 dollarar)
Drykkir eru aldrei innifaldir
Fyrir eins manns herbergi greiðast 690 dollarar. Það borgist með síðustu greiðslu. .
Einnig þarf ég að fá venjulegar upplýsingar:
1. Kennitölu, starf, fæðingarstað
2. Vegabréfsnúmer og útgáfudag og gildistíma
Staðfestingargjald 30 þúsund greiðist 1.-5.maí
1.júní 65 þús
1.júlí 65 þús
1.ág 65 þús
1.sept 65 þús
1.okt. 50 þús (plús gr. fyrir einsmanns herbergi þar sem eftir því er óskað)
Greiðist á reikninginn 1151 15 551346 og kt. 441004-2220
Eindregið er mælst til þess að menn borgi á réttum tíma